Tanzmesse er ein stærsta samkoma fagfólks innan samtímadansins og fer fram annað hvert ár í Düsseldorf í Þýskalandi. Markmið Tanzmesse er að skapa vettvang fyrir alþjóðlega samvinnu, miðla þekkingu og skapa tengslanet innan dansgeirans. Á hverri messu koma saman allt að 1.500 sýningarhaldarar og gestir frá ýmsum löndum til að kynna fjölbreyttar danslistir. Tanzmesse fer fram 28. ágúst til 31. ágúst 2024.
Árið 2022 tók Sviðslistamiðstöð Íslands fyrst þátt og deildi þá bás með Noregi. Sviðslistamiðstöðin styrkti einnig fimm danshöfunda til þátttöku sem fengu tækifæri til að kynna sig og verk sín. Nú höfum við tryggt okkur eigin bás til að kynna dans frá Íslandi. Líkt og árið 2022 mun miðstöðin taka saman upplýsingar um danshöfunda og verk í netbæklingi (nánar tilkynnt síðar).
Þeir sem eru með bás geta sent inn tillögur að verkum fyrir dagskrá Tanzmesse. Hægt er að kynna verk á þrjá vegu:
Performance Programme: Hægt er að senda inn tillögu að verki í fullri lengd til sýningar á sviðum Tanzmesse, í opnu rými eða stafrænt. Þetta á einnig við um verk sem eru ætluð yngri áhorfendahópum.
Open Studio: Listafólk fær 20 mínútur til að sýna styttri útgáfu af verki auk Q&A í studíói.
Insights: Listafólk heldur kynningu á verkum sýnum t.d. með hjálp myndbanda og slæðukynninga.
Við viljum því bjóða öllum danshöfundum búsettum á Íslandi að senda okkur umsóknir með tillögum að sýningum.
Skilyrði
Umsækjendur skulu hafa íslenska kennitölu og starfa sem atvinnufólk í sviðslistum.
Yfirferð umsókna:
Sérstök valnefnd Sviðslistamiðstöðvar mun fara yfir allar umsóknir. Þeir danshöfundar sem verða valdir fá tilkynningu og umsóknarhlekk til að skrá umsókn á vef Tanzmesse. Umsækjendur greiða sjálfir skráningargjald sem er 25 Evrur auk 7% virðisaukaskatts.
Þó ber að taka fram að lokaval verður í höndum valnefndar Tanzmesse. Verði verkefni frá Íslandi fyrir valinu þá greiðir Tanzmesse sýningarlaun fyrir alla þátttakendur fyrir flokkana Performance Programme og Open Studio. Þátttakendur þurfa sjálfir að afla viðbótarfjár til að standa straum af ferðum og uppihaldi. Sviðslistamiðstöð mun taka þátt í hluta af ferðakostnaði verði sýningar frá Íslandi valdar á messuna.
Umsóknarfrestur Sviðslistamiðstöðvar: 5. september 2023
Umsóknarfrestur valinna verka til Tanzmesse: 15. september 2023
Hvernig á að senda inn:
Vinsamlegast sendið okkur umsóknir á netformi hér - https://forms.gle/Axw9JaqHXBSBvhpv6
Nánari upplýsingar um Tanzmesse má finna á www.tanzmesse.com