Sviðslistamiðstöð Íslands óskar eftir sviðslistafólki og/eða hópum til að taka þátt í einum stærsta sviðslistamarkaði heims - CINARS í Montreal Kanada, dagana 7. - 12. nóvember.
Sviðslistamarkaðurinn CINARS heldur sölusýningu á tveggja ára fresti og þykir einn mikilvægasti vettvangur fyrir fagfólk innan sviðslista í Norður Ameríku. Þar leiða sviðslistafólk, skipuleggjendur, kaupendur og framleiðendur saman hesta sína oft með góðum árangri.
Sviðslistamiðstöð Íslands efndi í ár til samstarfs við hinar norrænu kynningarmiðstöðvarnar undir nafninu Nordics Combined.
Sviðslistamiðstöð velur þátttakendur úr innsendum umsóknum og veitir þeim ferðastyrk og greiðir þátttökugjaldið á hátíðina. Þátttakendur standa sjálfir undir hluta af kostnaði, bóka flug og gistinguna.
Drög að dagskrá fyrir þátttakendur:
* Nordic Pulse, kynningardagskrá Norðurlandanna (pitch session)
* Bás á Norræna Torginu (Nordic Square)
* Aðgangur að sýningum CINARS
* Norrænt party
* Viðburðir fyrir fagaðila og tengslamyndun
Þátttaka í CINARS er sérstaklega hugsuð sviðslistafólki og -hópum sem sjá Norður-Ameríku fyrir sér sem hugsanlegan markað fyrir verk sín.
Umsókn skal skilað á ensku í gegnum umsóknarform í hlekk hér að neðan. Við biðjum um fullunna texta en þeir gætu verið notaðir í dagskrá hátíðarinnar, birst á vefsíðum og samfélagsmiðlum.
Umsóknarfrestur er til 30. september
Nánari upplýsingar veitir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands - fridrik@performingarts.is