Stefnan var unnin af framkvæmdastjóra og stjórn Sviðslistamiðstöðvar Íslands. Til grundvallar stefnunni er stofnskrá miðstöðvarinnar, ásamt athugasemdum og viðbætum frá fundi með hagaðilum 17. janúar 2023. Í stefnunni er skilgreint hlutverk og framtíðarsýn miðstöðvarinnar ásamt fjórum áherslusviðum með markmiðum og aðgerðum. Stefnan er gefin út á íslensku og ensku.
Sviðslistamiðstöð Íslands er upplýsinga- og stuðningsmiðstöð fyrir listafólk, framleiðendur, hópa og stofnanir á vettvangi sviðslista á Íslandi.
Hlutverk Sviðslistamiðstöðvar Íslands er að styðja íslenskar sviðslistir og auka sýnileika þeirra, eftirspurn og hróður innan lands sem utan.
Tilgangi sínum hyggst miðstöðin ná með öflugu kynningarstarfi og sértækum átaksverkefnum sem hvetja til alþjóðlegra tengsla meðal sviðslistafólks og sviðslistastofnana á Íslandi. Þá veitir Sviðslistamiðstöð upplýsingar, sinnir fræðslu og annast námskeið sem lúta að þátttöku og starfi sviðslistafólks á alþjóðavettvangi.
Framtíðarsýn Sviðslistamiðstöðvar Íslands er að íslenskar sviðslistir verði eftirsóttur og sjálfsagður valkostur á alþjóðlegum vettvangi lista.
Markmið: Sviðslistamiðstöð á frumkvæði að því að skapa tækifæri fyrir sviðslistafólk til alþjóðlegrar tengslamyndunar og samstarfs.
Markmið: Sviðslistamiðstöð kynnir íslenskar sviðslistir á alþjóðlegum vettvangi. Miðstöðin miðlar upplýsingum um tækifæri erlendis til sviðslistafólks á Íslandi.
Markmið: Að efla þekkingu og hæfni sviðslistafólks á Íslandi á þeim þáttum sem snúa að framleiðslu, sýningarferðum, tengslamyndun og samstarfi á alþjóðavettvangi. Að eiga frumkvæði að og hvetja til samtals á vettvangi sviðslista um málefni sem varða hlutverk Sviðslistamiðstöðvar.
Markmið: Sviðslistamiðstöð veitir stjórnvöldum, stofnunum og félögum á vettvangi sviðslista ráðgjöf og aðhald varðandi þau málefni sem snerta hlutverk miðstöðvarinnar.