Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
1.22.25

Úthlutun úr Sviðslistasjóði 2025 - Fjárskortur takmarkar úthlutun til framúrskarandi verkefna

Sviðslistasjóður 2025: Fjárskortur takmarkar úthlutun til framúrskarandi verkefna

Sviðslistaráð hefur úthlutað styrkjum úr Sviðslistasjóði fyrir árið 2025. Að þessu sinni hljóta 12 atvinnusviðslistahópar styrki úr sjóðnum, þar sem úthlutanir nema samtals 98 milljónum króna. Að auki voru veittir 102 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks, sem nemur rúmlega 57 milljónum króna. Þessar úthlutanir, ásamt 98 mánuðum til einstaklinga í listamannalaunum, gera heildarupphæðina rúmlega 155 milljónir króna.

Ráðherra leggur áherslu á aðgengi að menningu

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði styrkþega við úthlutunina og lagði áherslu á mikilvægi að tryggja aðgengi að menningu:

„Í stefnu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að auka aðgengi landsmanna að menningarlífi óháð efnahag og búsetu, og verður það algjört forgangsmál hjá mér að ráðast í aðgerðir sem auka aðgengi.“

Færri verkefni styrkt en áður

Aðeins 12 verkefni hljóta styrk að þessu sinni, sem er lægsti fjöldi styrktra verkefna á liðnum áratug. Til samanburðar voru 19 verkefni styrkt árið 2019, áður en covid hafði áhrif á sviðslistalífið. Fjöldi styrktra verkefna jókst tímabundið á árunum 2020-2022 vegna covid-aðgerða, en nú hefur fjöldinn dregist saman þrátt fyrir að fjöldi framúrskarandi umsókna væri á borðinu.

Hafliði Arngrímsson, formaður Sviðslistaráðs, lagði áherslu á alvarleika stöðunnar í ræðu sinni:

„Hlutverk Sviðslistaráðs er að efla sviðslistir á Íslandi og vera ráðherra til ráðuneytis. Við höfum gert okkar besta hvað það varðar og sannarlega lagt okkur fram við að úthluta styrkjum og launum til bestu umsókna. (Þar á ég auðvitað ekki við umsóknirnar sem slíkar heldur innihald þeirra, ætlunarverkið og það sem liggur að baki.) Það var ekki auðvelt. 115 hópar sóttu um 1,7 milljarð króna, en til úthlutunar voru tæpar 100 milljónir. Þetta er sárgrætilegt og óviðunandi ástand.“

Stikkorðið er: Aukið fjármagn

Hafliði vakti athygli á því að fjárfesting í menningu sé ein afkastamesta fjárfesting sem ríkið getur ráðist í:

„Stikkorðið er: Aukið fjármagn. Það fylgir hvorki áhætta né sóun vegna þess að skapandi listir, þar með talið sviðslistir, skila margfalt meira af sér en þeim er rétt. Þetta hefur verið staðfest í rannsóknum í löndunum sem við viljum bera okkur saman við, og hér á landi einnig – fyrir hverja milljón sem fjárfest er í menningu skila sér þrjár milljónir til baka.“

Hann benti jafnframt á mikilvægi þess að styrkja grundvöll sviðslistalífsins:

„Sviðslistasjóður er ásamt listamannalaunum eini sjóður landsins sem styrkir fjölbreyttar sjálfstæðar sviðslistir eingöngu. Þrátt fyrir þetta er staða sjóðsins svo veik að hún skapar hvorki samfellu í starfi né tryggir nýliðun á ásættanlegan hátt.“

Tvö stór verkefni framundan

Í ræðu sinni nefndi Hafliði einnig tvö stór verkefni sem brýnt er að ljúka:

1. Sviðslistastefnan: „Mikil vinna hefur verið lögð í sviðslistastefnuna, og hún er nauðsynlegur leiðarvísir fyrir sviðslistalífið og stjórnvöld. Hún veitir mikilvæga yfirsýn, eykur fyrirsjáanleika og heldur fólki við efnið.“

2. Þjóðaróperan: „Það gengur ekki að Ísland sé eitt þriggja ríkja í Evrópu án óperu sem starfrækt er árið um kring. Stofnun Þjóðaróperu væri jafn stór viðburður og stofnun Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrir 75 árum.“

Verkefni sem hlutu styrk

Handbendi Brúðuleikhús ehf.: Rót/Rooted hlýtur 24 milljónir króna, þar af 10.560.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 24 mánuði úr launasjóði sviðslistafólks.

Menningarfélagið Tvíeind: Sérstæðan fær 22 milljónir króna, þar af 11.920.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 18 mánuði úr launasjóði.

Áhugafélagið Díó: Jötungíma kveður – minningarorð um mannkyn hlýtur 18,5 milljónir króna, þar af 10.660.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 14 mánuði úr launasjóði.

Elefant, félagasamtök: Þegar ég sé þig, sé ég mig 2.0 fær 15 milljónir króna, þar af 13.880.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 2 mánuði úr launasjóði.

Menningarfélagið MurMur: Púðlusafnið hlýtur 14,5 milljónir króna, þar af 6.660.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 14 mánuði úr launasjóði.

Svipir ehf.: Bústaðurinn fær 13 milljónir króna, þar af 3.480.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 17 mánuði úr launasjóði.

Sviðslistahópurinn Óður: Lucia di Lammermoor hlýtur 13,05 milljónir króna, þar af 5.770.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 13 mánuði úr launasjóði.

Miðnætti leikhús: Hreiðrið fær 12 milljónir króna úr Sviðslistasjóði.

Felix Urbina Alejandre: Song of the Rebel Flower (Látið blómin tala) hlýtur 11,6 milljónir króna úr Sviðslistasjóði.

Kammeróperan ehf.: Il Tabarro og Gianni Schicchi eftir G. Puccini fær 6,47 milljónir króna úr Sviðslistasjóði.

Haltáketti, félagasamtök: VENUS: Ásmundarsalur hlýtur 3 milljónir króna úr Sviðslistasjóði.

Barnamenningarfélagið Skýjaborg: Freedom of Speech – evrópskt samstarfsverkefni fyrir unglinga fær 2 milljónir króna úr Sviðslistasjóði.

Frekari upplýsingar um úthlutunina má finna á vef Rannís.

📷 Ljósmynd: Valgarð

-
Aðrar fréttir
Allar fréttir
No items found.