Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Íslenskt sviðslistafólk á stærstu sviðslistahátíð í heimi
Edinborgar Fringe hátíðin er stærsta sviðslistahátíð í heimi og er haldin árlega í ágúst í Edinborg á Skotlandi. Hátíðin stendur samfellt yfir 4. - 28. ágúst, með yfir 50 þúsund sýningar, 300 sýningarrými, 3500 viðburði og yfir 2 milljónir miða gefnir út. Íslenskt sviðslistafólk mun sýna verk sín á hátíðinni, þar á meðal:
Leikhópurinn Spindrift með verkið Them. Hópurinn er Finnsk-Íslenskur og sýndi verkið sitt nýlega í Tjarnarbíó. Frá Íslandi fara þær Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Tinna Önnu Þorvaldsdóttir og Juliette Louste. Verkið verður sýnt í Pleasance leikhúsinu.